Er miðjumótor betri?

Í flestum tilfellum er afturhjólamótorinn betri kostur, ef um er að ræða venjulega notkun á hjólastígum og/eða léttum malarstígum. (1)

Miðjumótorinn nýtur sín best hjá reyndum hjólamönnum í erfiðu fjallasporti. (2)


Kostir afturhjólamótors:

  • Lítið sem ekkert viðhald, engir hreyfanlegir hlutir í mótornum
  • Hann er ódýr, t.d. ef það þarf að skipta um mótor
  • Hann veldur engu auka álagi á keðju og drifbúnað
  • 250W krafturinn skilar sér betur, enda fer hann beint út í dekkið
  • Góður í meðalbröttum brekkum
  • Góður í borgarnotkun
  • Þolir vel drullu og óhreinindi

 

Gallar afturhjólamótors:

  • Þyngri mótor og allur þunginn á afturhjóli. Þetta atriði skiptir vanalega ekki máli í venjulegri notkun
  • Minna tork, sem yfirleitt skiptir engu máli, en getur verið verra  á litlum hraða í mjög bröttum brekkum

Kostir miðjumótors:

  • Hann er léttari, sem nemur 2 kílóum
  • Jafnari dreifing á þunga hjólsins, sem nýtist ef stokkið er á hjólinu
  • Gott tork, sem nýtist sjaldan, en aðallega ef farið er á litlum hraða í brattar brekkur

Gallar miðjumótors:

  • Miðjumótorinn veldur stórauknu álagi á keðju og dirfbúnað, vegna þess að öll orkan, bæði frá manni og mótor, þarf að flytjast með keðjunni yfir á afturhjólið. Því eru  keðjuslit algeng. Eftir 1.200 km þarf að skipta um keðju og eftir 1.500 km er keðjan farin að skemma tannhjól og gíra. Það getur því þurft að skipta um keðju oft á ári
  • Minni kraftur vegna orkutaps í tannhjólum og keðju
  • Töluvert viðhald er á mótornum sjálfum, þar sem hann byggist á gamaldags tannhjólum, sem þarf að taka sundur og smyrja. Sjá mynd:

miðjumótor innvols

Til að létta miðjumótorinn eru tannhjólin úr plasti, sem telst varla vera endingargott efni fyrir tannhjól:


Í afturhjólamótornum eru  engin tannhjól.  Allt er hreint og snyrtilegt. Rafsegulkrafturinn sér um að snúa hjólinu, án nokkurar snertingar.  Sjá mynd:

afturhjólamótor

 


Sjá einnig umfjöllun um tog og kraft

Um daginn kom til mín í búðina, maður á nýlegu og mjög dýru rafhjóli.  Hann var að liðsinna kunningjafólki sínu og úr varð að þau keyptu 2 hjól hjá mér.

Í framhaldinu spjallaði ég við manninn um hjólið hans, en það er frá heimsfrægum framleiðanda. Þá kom í ljós að hann var mjög óánægður með miðjumótorinn. Sagði mótorinn fara illa með keðjuna og að hann ætlaði að losa sig við hjólið sem fyrst.

Hans ummæli studdu því í reynd allar mínar vangaveltur varðandi miðjumótorinn.


NIÐURSTAÐA:

Fyrir þá sem eru að keppa og eru tilbúnir að leggja á sig mikið viðhald fyrir örlítið léttara hjól, getur verið ágætt að fara yfir í miðjumótor. En það getur þurft að skipta um keðju árlega eða jafnvel oftar, og einnig að taka upp mótorinn annað hvert ár.

Fyrir flesta er best að lágmarka vesen, viðhald og kostnað. Þá er afturhjólamótorinn mun betri kostur. Hann er kraftmeiri og með minna viðhald. Tveggja kílóa meiri þyngd breytir í reynd engu fyrir rafhjól, sérstaklega ef það er að mestu notað á stígum.


Þessi pistill er að nokkru byggður á: Electric hub motors vs mid drive motors

1:  If you are looking at buying an ebike because you want to get back into riding and haven’t ridden much before and you want maximum assistance for less effort then a hub motor will suit you better. The choice of gears you select is not as crucial and you’ll be able to ride in work clothes and not break as big a sweat. The weight distribution is not as nice as a mid drive but you probably won’t care that much anyway.

2:  If you’re an experienced rider and love to pedal hard, don’t want to get less aerobic exercise and your adept with using your bikes gears through all of its range then a mid drive motor is going to suit you. The weight distribution and power delivery of the motor is going to feel very familiar to you. You already understand the technique of correct gear shifting on a bicycle.

tafla yfir kosti og galla