Topphjól selur hjól með feitum dekkjum og kallast þau Jaxlinn.
(Nánari tæknilýsing þeirra hjóla er á vefsíðu okkar: topphjol.is)
Feitu dekkin veita aukið jafnvægi og stjórn
og gefa þér sjálfstraust til að gera nýja hluti.
Snöggar beygjur eru léttari og sá eiginleiki
nýtist bæði í borg og sveit.
Þú getur farið hvert sem er á þannig hjóli,
en sérstaklega njóta þau sín umfram önnur hjól
á svelli, snjó, sandi og drullu.
Í snjó skrikar þeim miklu síður en öðrum hjólum.
Engin hjól standa sig betur í lausamöl og miklum halla, þar sem stærð
gripflatarins skiptir mestu máli.
Breiðhjól eru að jafnaði notuð meira en önnur,
samkvæmt athugun singletracks.com.
Þau voru upphaflega hönnuð til að hjóla
yfir snjó í Alaska, og voru þau því hugsuð sem vetrarhjól.
En framfarir í grindarhönnun
hafa síðan gert þau að sannkölluðum heilsárshjólum,
þannig að þau nýtast ekki síður á sumrin.
Hönnun grindarinnar hefur orðið líkari fjallahjólum, sem gerir fólki
kleift að nota feithjól á gönguleiðunum á sumrin og fylgja þannig
vinum sem eru á venjulegum fjallahjólum.
Einnig eru þau góð borgarhjól, við hinar margbreytilegu aðstæður
sem við má búast,
sérstaklega hér á Íslandi.
Þau liggja lágt og taka því ekki á sig mikinn vind. Stóru dekkin
gefa þeim getu til að vera stöðug á klaka, snjó, sandi, drullu,
möl og grjóti.
Rafmagnið gerir síðan alla yfirferð létta og skemmtilega.
Alltaf þarf þó að hreyfa pedalana til að rafmótorinn vinni.
Inngjöfin er ákvörðuð með + og - hnöppum á mælaborðinu.
Þannig þarf hjólið að vera hannað,
til að það standist kröfur um rafhjól sem nota má á göngustígum.
Þessi hjól eru vissulega þyngri,og mótstaða feitu dekkjanna meiri.
Þau fara því hægar yfir. Það getur jafnvel verið kostur,
sérstaklega varðandi öryggi, og að maður nýtur ferðarinnar betur,
þegar farið er örlítið hægar.
Hópferðir breiðhjólamanna eru orðnar algengar erlendis og það eru
jafnvel haldnar keppnir á sumrin.
Á Facebook eru margar grúppur tileinkaðar breiðhjólum.
Meirihluti eigenda breiðhjóla notar hjólið allt árið um kring.