Ef keypt eru 2 rafhjól, þá er 30.000 í afslátt af seinna hjólinu.Það þarf ekki að kaupa þau bæði á sama tíma.

Jaxlinn

399.000 kr.

Lúxushjól fyrir vandláta.
Með stórum dempurum, böglabera, stóru sæti með sætisdempara og afturbeygðu stýri.
Frábært samgönguhjól, sem notað er daglega af fjölmörgum íslendingum, til og frá vinnu í öllum veðrum.
Og einnig afburða frístundahjól, sem sameinar styrk, þægindi og öryggi.
Drægni 80 km við góð skilyrði og lága inngjöf.
Upphitað stýri.
NAGLADEKK FYLGJA MEÐ!
Þeir sem ekki vilja nagladekk, geta fengið lás og hjálm.

  Hurry up! Sale end in:

  Deila

Lýsing

Segja má að hér sé allt gert fyrir mýkt og þægindi.
Breið dekk og stór framdempari hafa mikið að segja, en auk þess er mjúkt og þægilegt sæti á þessu hjóli og þar að auki einn besti sætisdempari heims, NCX frá Suntour, þannig að notandinn situr óþreyttur klukkustundum saman.

Fjögurra tommu breið dekkin gefa þessu öfluga hjóli aukin stöðugleika og afar gott grip. Hjólið er því gott til notkunnar jafnt innan bæjar sem utan. Ágætur kraftur til að glíma við okkar séríslensku aðstæður, brattar brekkur, ójöfnur og stífan mótvind.

Rafhlaðan er stór, sem veitir því góða drægni.

Stýrið er með stillanlega hæð og beygir aðeins aftur, þannig að ekki þarf að beyja sig mikið fram, heldur situr notandinn tiltölulega uppréttur.
Einnig er stýrið upphitað.

Allir fylgihlutir á myndinni eru innifaldir, bretti, bögglaberi, ljós o.s.frv.

Þetta hjól ber vel menn í þyngri kantinum.
NAGLADEKK FYLGJA MEÐ!
Þeir sem ekki vilja nagladekk, geta fengið lás og hjálm.

 

Tæknilýsing

  • Grind: Álblanda sem gefur léttleika og góða endingu til lengri tíma.
  • Gírar: 9 gíra Alivio skiptir frá Shimano, sem er stæðsti gíraframleiðandi heims.
  • Hágæða kassetta: Shimano CS-HG400 9 gíra
  • Mótor: Bafang RM G060, Kraftur: 250W og Tog: 80 Nm. Endingargóðir mótorar frá stæðsta mótorframleiðanda heims.
  • Bremsur: glussa diskabremsur.
  • Rafhlaða: 36V, 25 Ah, 900 Wh, lithium ásamt hleðslutæki.
  • Áætluð meðal drægni: 60 til 85 kílómetrar. Margir þættir hafa áhrif á drægninni rafhjólsins, til dæmis hitastig, vindur og dugnaður notandans. Einnig ef inngjöfin er höfð frekar lágt stillt, þá verður drægnin meiri.
  • Stjórnkerfið er opið og sveigjanlegt þannig að hver notandi getur ákvarðað stillingar eftir sínum hentugleika: fjöldi þrepa og afl á hverju þrepi er stillanlegt.
  • Dekk: KENDA 26″ x 4″.
  • ZOOM Forgo stillanlegir glussa demparar.
  • Sætisdempari: Suntour NCX , einn sá besti í heimi, sjá mynd hér fyrir neðan
  • Fylgihlutir innifaldir: bretti, standari, glitaugu, fram og aftur ljós, böglaberi.
  • Stýri: Stýrið er upphitað
Aukahlutir:
  • Auka 25 AH batterí á 75.000,-
  • Geymslubox á böglabera:  22.000,-
  • Stærri skjár: 20.000,-

Frekari upplýsingar

Þyngd 32 kg
Litur

BLÁTT, GRÆNN, RAUÐUR, SILFUR GRÁTT APPELSÍNUGULT, STEINGRÁTT

Jaxlinn myndbönd

SKU: N/A Vöruflokkur:  Merkimiðar: ,
Karfan
Óskalisti
Nýlega skoðað
Vöruflokkar
Jaxlinn

Jaxlinn

399.000 kr.

Senda fyrirspurn