Skilmálar netverslunar
Greiðslur og verð
Allar greiðslur fara í gegnum öruggt vefsvæði Teya. Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Topphjól ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir eða bakfæra pantanir vegna rangra upplýsinga um verð eða annarra rangra upplýsinga um vöru. Upplýsingar um verð og magntölur á lager eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur.
Sendingarmáti
Pantanir sem berast fyrir lokun dag eru sendar með Flytjanda/Eimskip daginn eftir. Viðskiptavinur getur valið að greiða Topphjólum fyrir flutninginn, sama verð um allt land, eða viðskiptavinur getur valið um að greiða Flytjanda/Eimskip flutningskostnaðinn sjálfur við afhendingu.
Ef pöntuð vara er ekki til á lager þá verður haft samband við kaupanda og látið vita um áætlaðan afgreiðslutíma.
Um allar sendingar gilda almennir afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Eimskip um afhendingu vörunnar.
Sendingarkostnaður kemur fram í pöntunarferlinu.
Skilafrestur eða endurgreiðsla
Skilafrestur pantana er 14 dagar frá kaupdegi og skal ósk um skil berast með tölvupósti á topphjol@gmail.com. Einungis er hægt að skila vörum sem eru ónotaðar og enn í upprunalegum umbúðum. Útsöluvörum er ekki hægt að skila en hægt er að skipta þeim út fyrir aðrar útsöluvörur. Endurgreiðsla fer fram þegar varan er komin aftur í hendur seljanda. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan þann kostnað sem gæti komið upp við heimsendingu.
Rafhjól og rafhlöður eru í ábyrgð í tvö ár frá kaupum, að hámarki 2.000 kílómetra akstur. Ábyrgðin á við um galla.
Persónuupplýsingar og trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Varnarþing
Viðskipti við topphjol.is er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.
