Litli Jaxlinn

Verð: 285.000.

Fjögurra tommu breið dekkin gefa þessu öfluga hjóli aukin stöðugleika og afar gott grip. Hjólið er því gott til notkunnar jafnt innan bæjar sem utan.

Það hefur ágætan kraft til að glíma við brattar brekkur, ójöfnur og stífan mótvind. Rafhlaðan er í meðallagi stór og áætluð drægni um 60 km.

Vökvabremsur auka öryggið til muna.

Allt er gert fyrir mýkt og þægindi. Breið dekk og framdempari hafa mikið að segja, en auk þess er mjúkt og þægilegt sæti á þessu hjóli og þar að auki einn besti sætisdempari heims, NCX frá Suntour, þannig að notandinn situr óþreyttur klukkustundum saman. (Sjá mynd af þessum dempara neðar á síðunni.)

Allir fylgihlutir á myndinni eru innifaldir, bretti, böglaberi, ljós o.s.frv.

Hjólið er samanbrjótanlegt þannig að það kemst auðveldlega í bílinn.

Tæknilýsing:

  • Grind: Álblanda sem gefur léttleika og góða endingu til lengri tíma.
  • Gírar: 9 gíra Alivio skiptir frá Shimano, sem er stæðsti gíraframleiðandi heims.
  • Mótor: Bafang 250W. Endingargóðir mótorar frá stæðsta mótorframleiðanda heims.
  • Bremsur: Union Star glussa diskabremsur.
  • Rafhlaða: 36V, 13 Ah, 468 Wh, lithium ásamt hleðslutæki.
  • Litir: grá-sanseruð, sjá mynd.
  • Áætluð meðal drægni: 50 til 60 kílómetrar. Margir þættir geta dregið úr drægninni, til dæmis hitastig, vindur og dugnaður notandans.
  • Stjórnkerfið er opið og sveigjanlegt þannig að hver notandi getur ákvarðað stillingar eftir sínum hentugleika: fjöldi þrepa og afl á hverju þrepi er stillanlegt.
  • KENDA dekk 20″ x 4″.
  • ZOOM glussa demparar.
  • Suntour NCX sætisdempari, einn sá besti í heimi, sjá mynd hér fyrir neðan
  • Fylgihlutir innifaldir: bretti, standari, glitaugu, fram og aftur ljós, böglaberi.

Ævintýrin bíða