GÆÐI
Til að tryggja gæði hjólanna sem mest eru íhlutirnir frá mörgum af heimsins bestu framleiðendum, meðal annars: Shimano gírasett, Samsung batterí, Tectro bremsur og Suntour demparar.
Hjólin eru af tegundinni TXED, sem framleitt hefur hjól frá árinu 1994. Grindin er úr styrktri álblöndu og sameinar því styrk og léttleika.
ÖRYGGI
Topphjól selur þá tegund rafhjóla sem nota má á göngu- og hjólastígum.
Afl mótora er takmarkað við 250W og mótorinn styður notandann upp að 25 kílómetra hraða. Kraftmeiri rafhjól flokkast sem létt bifhjól. Þannig hjól eiga að notast á umferðargötum. Topphjól selur ekki slík hjól. Við tryggjum best öryggi okkar með því að vera fjarri bílaumferð þegar við hjólum. Einnig þarf að sjálfsögðu að vera með hjálm og hanska.
“ERU HJÓLIN FRÁ KÍNA?”
Eftir að hafa keypt hjá mér hjól í sumar kom kaupandinn strax daginn eftir í búðina til mín og spurði “Eru hjólin frá Kína?”.
Já sagði ég, þau eru framleidd í Kína eins og ýmsar aðrar vörur. Ég sagði honum að til dæmis Amerísku TREK hjólin væru flest framleidd í Kína og Tævan. Síðan ræddum við málin og hann hafði um margt að spyrja varðandi hjólin og augljóst að mikil tortryggni var komin í gang. Hann hafði farið með hjólin í vinnuna og félagarnir töluðu niður hjólið, sérstaklega á þeirri forsendu að það væri frá Kína.
Síðan hefur hann oft komið til mín að ræða málin og í vikunni kom hann við hjá mér og sagði að Forwardinn hans stæði sig best af hjólunum á vinnustaðnum. Nýjasta fréttin væri, að mótorinn á dýrasta hjólinu væri ónýtur.
Það geta sem sagt öll hjólin bilað, líka þessi dýrustu. Og þessi dýru eru jafnvel líka framleidd í Kína.

Nowadays, all of their bikes are made in Taiwan and China, except for the Madone 6 series.
Er Miðjumótor Betri?
Í flestum tilfellum er afturhjólamótorinn betri kostur, ef um er að ræða venjulega notkun á hjólastígum og/eða léttum malarstígum.
Miðjumótorinn nýtur sín best hjá reyndum hjólamönnum í erfiðu fjallasporti.
Kostir afturhjólamótors
- Minna viðhald.
- Hann er ódýr, t.d. ef það þarf að skipta um mótor.
- Hann veldur engu auka álagi á keðju og drifbúnað.
- 250W krafturinn skilar sér betur, enda fer hann beint út í dekkið.
- Góður í meðalbröttum brekkum.
- Góður í borgarnotkun.
- Þolir vel drullu og óhreinindi.
Gallar Afturhjólamótors
- Þyngri mótor og allur þunginn á afturhjóli. Þetta atriði skiptir vanalega ekki máli í venjulegri notkun.
- Minna tork, sem yfirleitt skiptir engu máli.
Kostir Miðjumótors
- Hann er léttari sem nemur 1 kílói.
- Jafnari dreifing á þunga hjólsins, sem nýtist ef stokkið er á hjólinu.
- Meira tork, þ.e. meiri seigla upp brekkur.
Gallar Miðjumótors
- Miðjumótorinn veldur stórauknu álagi á keðju og drifbúnað. Það er vegna þess að öll orkan, bæði frá manni og mótor, þarf að flytjast með keðjunni yfir á afturhjólið. Eftir ca. 1.000 km gæti þurft að skipta um keðju, því keðjan getur auðveldlega farið að skemma tannhjól og gíra. Það getur því þurft að skipta um keðju oftar en einu sinni á ári. (Þetta getur verið mismunandi eftir hjólum og ætti seljandi að gefa viðeigandi upplýsingar um þetta atriði).
- Minni kraftur vegna orkutaps í tannhjólum og keðju.
- Töluvert meira viðhald.

Í afturhjólamótornum eru engin tannhjól. Allt er hreint og snyrtilegt. Rafsegulkrafturinn sér um að snúa hjólinu, án nokkurar snertingar:

Til að létta miðjumótorinn eru tannhjólin stundum höfð úr plasti. Menn hafa birt myndir á samfélagsmiðlum sem sýna hvernig þannig tannhjól geta orðið við notkun:

(Um daginn kom til mín í búðina, maður á nýlegu og mjög dýru rafhjóli. Hann var að liðsinna kunningjafólki sínu og úr varð að þau keyptu 2 hjól hjá mér.
Í framhaldinu spjallaði ég við manninn um hjólið hans, en það er frá heimsfrægum framleiðanda. Þá kom í ljós að hann var mjög óánægður með miðjumótorinn. Sagði mótorinn fara illa með keðjuna og að hann ætlaði að losa sig við hjólið sem fyrst.
Hans ummæli studdu því í reynd allar mínar vangaveltur varðandi miðjumótorinn.)
Niðurstaða:
Fyrir þá sem vilja erfiða meira á hjólinu og eru tilbúnir í mikið viðhald fyrir örlítið léttara hjól, getur verið ágætt að fara yfir í miðjumótorshjól.
En fyrir flesta er best að lágmarka vesen, viðhald og kostnað og hámarka kraftinn. Þá er afturhjólamótorinn mun betri kostur. Hann er aflmeiri og léttari í viðhaldi.
Þessi pistill er að nokkru byggður á: Electric hub motors vs mid drive motors

Afturhjólamótorinn:
1: If you are looking at buying an ebike because you want to get back into riding and haven’t ridden much before and you want maximum assistance for less effort then a hub motor will suit you better. The choice of gears you select is not as crucial and you’ll be able to ride in work clothes and not break as big a sweat. The weight distribution is not as nice as a mid drive but you probably won’t care that much anyway.
Miðjumótorinn:
2: If you’re an experienced rider and love to pedal hard, don’t want to get less aerobic exercise and your adept with using your bikes gears through all of its range then a mid drive motor is going to suit you. The weight distribution and power delivery of the motor is going to feel very familiar to you. You already understand the technique for correct gear shifting on a bicycle.