Jaxlinn

Verð: 325.000.

Fjögurra tommu breið dekkin gefa þessu öfluga hjóli aukin stöðugleika og afar gott grip. Hjólið er því gott til notkunnar jafnt innan bæjar sem utan. Ágætur kraftur til að glíma við okkar séríslensku aðstæður, brattar brekkur, ójöfnur og stífan mótvind.

Rafhlaðan er stór, sem veitir því góða drægni.

Stýrið er með stillanlega hæð og beygir aðeins aftur, þannig að ekki þarf að beyja sig mikið fram, heldur situr notandinn tiltölulega uppréttur.

Segja má að hér sé allt gert fyrir mýkt og þægindi. Breið dekk og stór framdempari hafa mikið að segja, en auk þess er mjúkt og þægilegt sæti á þessu hjóli og þar að auki einn besti sætisdempari heims, NCX frá Suntour, þannig að notandinn situr óþreyttur klukkustundum saman. (Sjá mynd af þessum dempara neðar á síðunni.)

Allir fylgihlutir á myndinni eru innifaldir, bretti, böglaberi, ljós o.s.frv.

Næst verða í boði grá-sanseruð og blá-sanseruð.

Þetta hjól ber vel menn í þyngri kantinum.

Tæknilýsing:

  • Grind: Álblanda sem gefur léttleika og góða endingu til lengri tíma.
  • Gírar: 9 gíra Alivio skiptir frá Shimano, sem er stæðsti gíraframleiðandi heims.
  • Hágæða kassetta: Shimano CS-HG400 9 gíra
  • Mótor: Bafang RM G060, Kraftur: 250W og Tog: 80 Nm. Endingargóðir mótorar frá stæðsta mótorframleiðanda heims.
  • Bremsur: glussa diskabremsur.
  • Rafhlaða: 36V, 20 Ah, 720 Wh, lithium ásamt hleðslutæki.
  • Litir: Nú eru í boði grá-sanseruð og blá-sanseruð.
  • Áætluð meðal drægni: 60 til 85 kílómetrar. Margir þættir geta dregið úr drægninni, til dæmis hitastig, vindur og dugnaður notandans.
  • Stjórnkerfið er opið og sveigjanlegt þannig að hver notandi getur ákvarðað stillingar eftir sínum hentugleika: fjöldi þrepa og afl á hverju þrepi er stillanlegt.
  • Dekk: KENDA 26″ x 4″.
  • ZOOM Forgo stillanlegir glussa demparar.
  • Sætisdempari: Suntour NCX , einn sá besti í heimi, sjá mynd hér fyrir neðan
  • Fylgihlutir innifaldir: bretti, standari, glitaugu, fram og aftur ljós, böglaberi.

Aukahlutir:

  • Auka 15 AH batterí á 34.000,-
  • Auka 20 AH batterí á 60.000,-
  • Auka 25 AH batterí á 79.000,- 
  • Geymslubox á böglabera:  22.000,-   
  • Stærri skjár: 20.000,-   

Sjá umfjöllun um þessi hjól hér á síðu Topphjóla.

2 ára ábyrgð á hjóli og batteríi.

(Möguleiki er að fá nagladekk fyrir þessi hjól, sjá neðst á síðu um nagladekk.)

Ævintýrin bíða